©Sturluson Entertainment Ltd.

laugardagur, ágúst 19

Fóru...

...allir Íslendingar í heiminum niður í miðbæ Reykjavíkur? Ég var þarna á ferðinni um kaffileytið og þar sem fjöldinn hamlaði talsvert för fór þetta í taugarnar á mér. Komst að því í eitt skipti fyrir öll að þegar karlmenn taka sér stjórnunarstöðu fyrir aftan barnakerru dettur heili þeirra úr sambandi. Þeir virðast halda að þeir öðlist einhvers konur ofurhæfileika, t.d. að bílar og fólk komist hreinlega í gegnum bæði þá sjálfa og allt sem þeir snerta. Þeir taka sér líka mjög gjarnan biðstöðu úti á miðri götu, jafnvel á miðri gangbraut, sem er hvorki líklegt til vinsælda né afreka. Líklega er það þessi sérstæða handstaða við barnakerruýtingar sem hefur hamlandi áhrif á blóð- og súrefnisflæði til heila karlmannsins, sem er umhugsunarvert í ljósi þess að í sumum tilfellum er toppstykkið ekkert rosalega orkufrekt til að byrja með! Handstöðukenningin fær byr undir báða vængi þegar tekið er tillit til þess að svipaður greindarskortur gerir stundum vart við sig þegar karlpeningurinn ýtir innkaupakerru á undan sér.
Það er reyndar svolítið fyndið að það er ekki nema við hátíðleg tækifæri sem karlar virðast sjá einhvers konar tilgang í því að taka að sér stjórn barnakerra. Þetta er einhvers konar trend. Kannski eitthvað svipað og grilleinokunin...nema að grilltaktarnir eru hvorki daga- né árstíðarbundnir á nokkurn hátt. Það er heilsársmisskilningur.

Maður rekst á margt sérkennilegt og skemmtilegt í netheimum. Rambaði einhverra hluta vegna inn á heimasíðu fyrirtækisins D3. Ekkert merkilegt við það í sjálfu sér. Þannig. Komst hins vegar að þeirri niðurstöðu að þetta fyrirtæki hlýtur að eiga met í fjölda millistjórnenda. Í starfsmannatali eru 20 manns. Í þessum hópi eru (í handahófsröð) framkvæmdastjóri, fréttastjóri, vefstjóri, tæknistjóri, þróunarstjóri, efnisstjóri (sem ég held örugglega að sé vinkona Stjána bró), þjónustustjóri, verkefnastjóri og síðast en ekki síst sölu- og markaðsstjóri. 9 stykki! Það gerir 45% starfsmanna ef mér skjöplast ekki! Magnað!

Fann mynd af helsta afreki Tommy Lee í háskóla. Hann settist jú á skólabekk á gamals aldri og að sjálfsögðu var gerður úr því raunveruleikaþáttur eins og þeir gerast bestir. Ég sá þennan þátt auglýstan á einhverri stöðinni hérna heima, þannig að það fer að styttast í að við fáum að njóta herlegheitanna. Fáum sögum fer af námsárangri Tómasar litla, sem í sjálfu sér kemur ekkert sérlega mikið á óvart, en hins vegar lét hann til sín taka í skólahljómsveitinni!












Sá Elton John vera að belgja sig í einhverjum spjallþætti fyrir skemmstu. Ég er ekki mikill aðdáandi Eltons, sumt sem hann gerði snemma á ferlinum er ágætt, en þegar allt kemur til alls finnst mér hann óttaleg lofthæna. Það var kannski þess vegna sem ég fór að leita að mynd af manninum stunda þá iðju sem hann staglaðist á í téðu viðtali að hann stundaði mikið. Tennis.









Ég hélt í smástund að ég væri búinn að finna galla á Google. Ég var að leita að mynd af Elton John í tennis og fékk bara einhverja dýralífsmynd! Sá fyrir mér að ég gæti grætt fúlgur fjár með því að hóta stofnnördunum tveimur að opinbera þennan galla. Svo áttaði ég mig á því að Google var ekkert að klúðra málunum. Þetta er náttúrulega bara rostungurinn Elton með tennisspaða!

Þessi mynd gleður mitt geð!











Bleikskyrtungurinn er alveg með þetta! Hann hefur líklegar verið rétt nýbúinn að sleppa höndunum af barnakerrunni. Súrefnið ekki alveg farið að skila sér upp á efri hæðina! Ég þori að veðja að hann hefur valið sér þessi föt sjálfur!

Að lokum...getraun þáttarins.

Úr hvaða bíómynd eru þessi orðaskipti?

- Is your mommy here?
- No, sir. Actually, she´s out at the market buying Pampers for all us kids.

6 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Sæll stóri bró,

Komínn tími til að maður kvitti hér og tjái sig eitthvað...

Skondin tilviljun að þú skyldir hafa farið inn á síðu d3... Á næturvakt um daginn rambaði ég þar inn og sá að Hadda vinkona mín úr MA, sem eitt sinn var ræðumaður Íslands í Morfís, er farin að vinna þar, þú hefur greinilega gott minni!

Talandi um minni...
Ef minnið er ekki að svíkja mig þá er þessi setning, sem um er spurt, úr hinni frábæru mynd, The Goonies, sem er ein af mínum uppáhaldsmyndum.
Til gamans má geta að lengi vel stóð til að gera framhaldsmynd en því miður þá varð ekkert úr því...

Að endingum má svo geta að Wycombe Wanderers unnu stórsigur í dag 3-0 og Jermaine Easter setti þrennu, takk fyrir!

kv. Kristján.

3:09 AM  
Blogger Gulla said...

Mikið ægilega ertu allt í einu orðinn skemmtilegur penni Snorri, snilldin hreinlega vellur upp úr þér.
Fyrir utan eitt þó...Elton er víst góður tónlistarmaður.

6:35 PM  
Anonymous snorrinn said...

Dammit. Stjáni var nú eiginlega nóló í þessari getraun...hafandi horft á myndina oftar en meðal maður hefur deplað augunum.

Gulla! Þú ert geggjuð! Mesti kvenkostur sem ég hef kynnst! Er Finnur ekki orðinn frekar þreytandi?

7:56 PM  
Blogger Hjörtur Howser said...

Sammála síðasta ræðumanni um penmanshippið á S. Fín lesning.

H.

9:08 PM  
Blogger Gulla said...

Og enn toppar kallinn sig...orðinn hótfyndinn og allt !! Vúhú

11:20 PM  
Anonymous Bonham said...

Goonies maður eðall frá 1985

4:38 PM  

Sendu inn athugasemd

<< Home