©Sturluson Entertainment Ltd.

föstudagur, júlí 7

Undarlegur...

...fjandi hvað hlutir í daglega lífinu koma manni alltaf þægilega á óvart. Líklega minnkar skemmtanagildið talsvert þegar atburðir líðandi stundar læðast ekki lengur aftan að manni. Sigurjón M. Egilsson er orðinn ritstjóri Blaðsins. Ég misskildi þetta reyndar fyrst og skildi ekki alveg undrunarsvip þeirra sem fluttu mér fréttirnar. Ég tók þetta óvart fyrir Fréttablaðið, sem hefði nú bara verið "eðlilegt" í sögulegu samhengi, en þetta er hins vegar með því undarlegra sem gerst hefur lengi. Það var kannski þetta sem Eiríkur Jóns átti við þegar hann sagði í blaðaviðtali í vikunni að það væru miklar hræringar og spennandi tímar framundan í íslenskum fjölmiðlum. Ég hélt að hann væri kannski kominn með sjaldgæfan hitabeltissjúkdóm sem hefur neikvæð áhrif á greind og rökhugsun, en líklega vissi hann alveg hvað hann söng. Allt er í heiminum hverfult. Er stórt, flókið og útpælt plott í gangi?








Þetta eru Ítalíumeistarar Juventus að fagna síðasta meistaratitli, eða Scudetto. Það glittir þarna í nokkra verðandi heimsmeistara og ekki má gleyma því að ókleifur múrinn í miðju Juve-varnarinnar kemur heldur betur við sögu á sunnudaginn, Cannavaro gegn Thuram. Nú bendir hins vegar flest til þess að La Vecchia Donna neyðist til að skila meistaraskildinum og verði dæmd niður um deild. Svona geta nautheimskir stjórnendur skitið á sig fyrir allan peninginn. Lögmaður Juve var að lýsa því yfir að félagið sætti sig við að leika í Serie B á næstu leiktíð og líklega byrjar liðið með 15 stig í mínus. Thuram og Del Piero eru meðal þeirra sem hafa lýst því yfir að þeir yfirgefi ekki herbúðir, en hins vegar ætla búðingar á borð við Nedved og Emerson að leita á önnur mið. Didier Deschamps verður líklega ráðinn þjálfari liðsins í stað Fabio Capello sem lagði á flótta.

Hef lagt leið mína í kvikmyndahús í tvígang á tiltölulega skömmum tíma. Ekki fréttnæmt í sjálfu sér og myndirnar misjafnar, en mikið rosalega er óþolandi að sýningar hefjast ekki fyrr en tuttugu mínutum á eftir áætlun. Mynd sem sett er á dagskrá kl. 22.20 er að hefjast kl. 22.37. Þetta er fáránlegt. Endalausar auglýsingar og sýnishorn úr öðrum kvikmyndum. Er ekki hægt að rúlla því drasli af stað 17 mínútum fyrr og hefja bíómynd kvöldsins kl. 22.20? Íslenskt hugarfar kristallast svolítið í þessari "seinkun". Við getum aldrei drullast til að mæta neitt á réttum tíma...og það kemur ekki að sök. Þegar við förum í bíó vitum við að myndin byrjar ekki fyrr en undir miðnætti hvort eð er! Nenni ekki að ergja mig á þessu fjárans hléi líka. Það er samt eitthvað það asnalegasta sem til er.

Það fer að styttast í að frumburðurinn fái sérstakt leyfi yfirvalda til að þróa aksturshæfileikana. Bílprófið fylgir í flestum tilfellum í kjölfarið og það er ekki laust við að örli á kvíða. Það er betra að búa sig undir þetta með hæfilegum fyrirvara. Ég er ekki alveg á þeim buxunum að fórna Skódanum í þetta hættulega verkefni. Er búinn að finna hinn fullkomna bíl til verksins. Gallinn er sá að hann býr í útlöndum, líklega myndi kosta sitt að fá hann hingað heim og svo er hann bara svo fjandi flottur að ég myndi líklega ekki tíma honum heldur í þetta. Þetta er sannkölluð glæsibifreið af tékkneskum ættum...reyndar tékkóslóvakískum ef út í það er farið.