Stundum...
...veltir maður því fyrir sér hver tilgangur ákveðinna fjölmiðla er nákvæmlega og hvað fjölmiðlafólki gengur til með umfjöllun sinni. Í nýjasta hefti hins kunna fagtímarits Séð og heyrt er fjallað um nýafstaðna Hróarskelduhátíð í máli og myndum. Umfjöllunin er svo sem hvorki fugl né fiskur þannig, myndin af Óla Palla veitir reyndar gleði og vellíðan, en tvær aðrar myndir gera það að verkum að það er ekkert mark á þessu takandi.
Annars vegar þessi...

Í myndatexta er fjallað um að Dave Grohl og félagar í Foo Fighters hafi verið í miklum ham, sem verður að teljast yfirnáttúrulega vel af sér vikið. Foo Fighters voru nefnilega ekkert að spila á Hróarskeldu, frekar en Brian Wilson sem birtist á mynd á næstu síðu í blaðinu.
Magni rúllaði þessu upp í Rockstar, var eiginlega bara besti karlsöngvarinn og þá er öll hlutdrægni lögð til hliðar! Ástralakvikindið þarna í lokin stóð sig svo sem ágætlega, en það er samt eitthvað við hann sem gengur ekki alveg upp. Hins vegar er algjörlega morgunljóst hver vinnur þetta. Dímónska daman, sem á löngum köflum virðist ná tengslum við æðri máttarvöld, er gjörsamlega með þetta.
Heyrði þá kjaftasögu að Tommy Lee og Jason Newstead séu með Chihuahua-hundana sína með sér hvert sem þeir fara. Þessi saga gerði það að verkum að þeir hækkuðu talsvert í áliti hjá mér. Fannst ég líka sjá glitta í flugvélaúr á hendi Magna. Það ber vott um greind, gáfur og góðan smekk að ganga með slíkt úr.

Kannski var þetta alls ekkert flugvélaúr, en hann fær þó eitt rokkstig aukalega þar til annað kemur í ljós.

1 Comments:
Þú ert svo mikill tískuþræll...
Sendu inn athugasemd
<< Home