©Sturluson Entertainment Ltd.

mánudagur, júlí 17

Helgarnar...

...eru of stuttar. Þegar ég verð forseti verður það mitt fyrsta embættisverk að lengja þær. Jafnvel snúa þessu alveg við. Ég er ekki alveg búinn að hugsa þetta.

Undarlegur fjandi að allt í einu brast á með vísi að sumarveðri í gær. Maður veit eiginlega ekki alveg hvernig maður á að fara með slíkar gjafir. Fátt er þó huggulegra en að grilla í sólskini og smella sér svo á völlinn. Ekki skemmdi það nú fyrir að rauðklæddir Friðrikssveinar höfðu sigur á ríkjandi/verðandi Íslandsmeisturum. Sat við hliðina á einum fræknasta framherja íslenskrar knattspyrnusögu, hinum eina sanna Hödda Magg, og hann tók tíðindum kvöldsins af stóískri ró. Það eykur talsvert á ánægjuna að hafa sér við hlið knattfróðan mann sem hægt er að tala við án þess að hreinlega sjá froðuna vella út úr eyrunum.

Tvö atriði sem vert er um að geta, bæði til þess að svara fjölmörgum spurningum og ekki síður til þess að forðast þrálátan misskilning. Fyrir það fyrsta...X-FM er ekki á hraðri leið til glötunar. Vissulega hafa vindar blásið síðustu dægrin, en þó gætu á næstu dögum gerst hlutir sem bera öll einkenni þess að koma talsvert á óvart. Stöðin er að stækka og dafnar ágætlega og þess verður ekki langt að bíða að hún teygi anga sína enn lengra en hún gerir í dag. Í öðru lagi...ég er ekki að snúa mér aftur að íþróttafréttamennsku. Ég hef fengið tilboð, en mig hreinlega langar ekki í þennan geira aftur. Ég á ekki von á því að sú afstaða mín breytist neitt á næstunni. Ég hef sagt það áður og segi það enn; íþróttafréttamennska á Íslandi er að afskaplega mörgu leyti á villigötum. Aðgengi og "fréttaneysla" almennings hefur breyst ansi mikið á síðustu árum, en þessu breytta landslagi hafa ekki fylgt breytingar á íþróttafréttum. Það eru líka takmörk fyrir því hvað maður nennir að taka sama viðtalið oft. Það er skemmtilegra að upplifa íþróttirnar af hluttekinginu, innan skynsemismarka, og á eigin forsendum. Ég hugsa að ég myndi m.a.s. sleppa því að lýsa leikjum í enska boltanum ef það væri ekki svona fjandi vel borgað!

Meistari Morrissey er á leiðinni til landsins til tónleikahalds. Megi Grími Atla, sem ber ábyrgð á komu snillingsins, auðnast öll sú gleði og hamingja sem hann og hans nánustu geta höndlað. Það er stór misskilningur að Morrissey njóti aðallega hylli vegna afreka sinna með The Smiths. Hann er reyndar farinn að mildast á efri árum og er farinn að spila nokkrar Smiths-perlur á tónleikum, segist vera kominn yfir það andlega sjokk og þau leiðindi sem hann upplifði á meðan hljómsveitin var starfandi (!), en einherjaplöturnar hans eru öngvu síðri en Smiths-verkin. Ekki mikið síðri alla vega. Ringleader Of the Tormentors verður pottþétt á listanum yfir plötur ársins. Höddi Magg, svo enn og aftur sé vitnað í þann mikla spekúlant, sagði á sínum tíma að til þess að gera betri plötu þyrfti að grafa upp nokkra ágæta menn sem bera eftirnafnið Wilson!