©Sturluson Entertainment Ltd.

mánudagur, júlí 10

Það habbðist!

Ítalskur sigur var fyllilega verðskuldaður og óskaplega sætur að auki. Hafi einhver efast um snilli Marcello Lippi ætti sá hinn sami nú að hafa sannfærst í eitt skipti fyrir öll. Maðurinn er einfaldlega snillingur og ef ég væri forseti ítalska knattspyrnusambandsins myndi ég bjóða honum grilljón grilljónir í laun, undanþágu frá skatti og vindlakassa frá Kúbu fyrir að skrifa undir nýjan samning.









Lippi er ansi merkilegur fír. Hann er af alþýðufólki kominn, kommúnisti að upplagi og fyrirleit allt sem tengdist markaðshyggju og söfnun auðs á fárra hendur. Fyrir margt löngu var hann að dandalast eitthvað í pólitík og var talinn vonarstjarna ítalskra kommúnista, en með tíð og tíma fjarlægðist hann marxískar kenningar og sá ljósið. Karl faðir hans var hins vegar Stalínisti þar til yfir lauk og Lippi hefur sagt frá því að þegar hann tók við Juventus á sínum tíma hafi hann farið að gröf föður síns til að biðja gamla manninn afsökunar á því að stýra knattspyrnuliði sem veltir milljónum, ef ekki milljörðum, og heldur úti öflugu markaðsstarfi. Á þjálfaraferlinum hefur hann afrekað nánast allt sem hægt er að afreka og skrautfjöðrina nældi hann auðvitað í hattinn í Berlín. Það er ekki beinlínis hlaupið að því að sameina sundraða knattspyrnuþjóð þar sem hver skandallinn rekur annan.

Ég skil ekki alveg kverúlantana sem gráta franskan ósigur. Þeir voru einfaldlega ekki nógu góðir til að vinna leikinn, misstu reyndar Vieira og Henry af leikvelli vegna meiðsla og Zidane sá um sig sjálfur. Nú þarf að ráðast í það vandasama verk að fylla skörð manna á borð við Zidane, Thuram og Makelele. Það læðist að manni sá grunur að næstu ár verði franska liðinu ansi mögur. Þjóðverjarnir verða hins vegar sterkir í nánustu framtíð, vonandi ber Bæjaraklíkan gæfu til þess að ríghalda í Klinsmann og þá er Evrópumeistaratitillinn eftir tvö ár nánast í húsi.

Zinedine Zidane. Hvað er hægt að segja? Besti knattspyrnumaður heims mörg undanfarin ár hvarf af stóra sviðinu á eftirminnilegan hátt. Með lortinn í buxunum. Það sem eiginlega er verst við þetta er að þessi stórundarlega hegðun hans skyggir nú á einn flottasta knattspyrnuferil sem um getur, ógleymanlega leiki og óviðjafnanleg mörk. Zidane er svo miklu meira en knattspyrnumaður, verandi af alsírskum ættum hefur hann verið nokkurs konar sameiningartákn sundraðrar og á löngum köflum ansi hreint ruglaðrar þjóðar. Það kannski segir sitt um stöðu hans og takmarkalausa aðdáun alls knattspyrnuáhugafólks að strax eftir leik var fólk farið að fyrirgefa honum og leita skýringa á þessari undarlegu hegðun. Flestum öðrum knattspyrnumönnum hefði verið sparkað út af sakramentinu af fítonskrafti. Zidane ætlar að skýra mál sitt á allra næstu dögum og allar þessar vangaveltur um hvort Materazzi hafi kallað hann hryðjuverkamann eða svívirt móður hans eru gagnslausar.

Til að ljúka nú HM-vangaveltum...Sýn stóð sig með sóma, eins og við var að búast. Umgjörðin hin ágætasta og ekki undan neinu að kvarta. Ekki einu sinni þegar AB sagði að staðan í úrslitaeiknum væri jöfn-jöfn. Ég hefði hins vegar ekki látið mér detta það í hug að borga 14 þúsund kall fyrir pakkann...og fá svo fjóra mikilvægustu leikina í opinni dagskrá.

Getraun þáttarins tengist ferðalagi helgarinnar. Hvar er þessi mynd tekin?

3 Comments:

Blogger Gulla said...

Ferðalag segirðu...ég held að þetta sé nú bara við Elliðaár.

8:57 PM  
Anonymous snorrinn said...

æi...

4:22 PM  
Blogger mokkurinn said...

hraunfossar

2:25 PM  

Sendu inn athugasemd

<< Home