©Sturluson Entertainment Ltd.

miðvikudagur, júní 21

Undarlegt...

...þetta líf. Maður heldur að hlutirnir séu svona, en við nánari skoðun kemur í ljós að þeir eru hinsegin. Þetta eru búnir að vera undarlegir dagar, en uppspretta undarlegheitanna verður hér látin liggja á milli hluta. Sjálfsskoðun er holl, ekki síst ef hún leiðir af sér hugarfarsbreytingar og jafnvel það að valinn verður vegur sem öruggt er að liggur til meiri vegsemdar í sem víðustum skilningi.

Heitir þetta ekki fölskvalaus gleði?










Norðanferðin var fín. Það er endurnærandi að renna út á Dalvík. Skódinn er hugsanlega langbesti bíll sem framleiddur hefur verið. Ég hef aldrei verið svona fljótur á milli og ferðaþreytan var nákvæmlega engin. Var að spá í að fara norður aftur og vera viðstaddur endurkomu Stuðkompanísins, en féll frá þeirri hugmynd. Komst að þeirri niðurstöðu að ég væri ekki ómissandi hluti endurupplifunar þessa blómaskeiðs í íslenskri dægurtónlist. Næsta norðanferð er hins vegar löngu komin inn í dagbókina. Fiskidagurinn mikli á Dalvík.
Roger Waters var líka fínn. Reyndar svolítið meira en það. Það eina sem var virkilega pirrandi var að þurfa að standa upp á annan endann í hálfan sólarhring á meðan meistarinn mikli lék ellefu hljómplötur í heild sinni. Þetta virkaði alla vega eins og heill plötuskápur þegar öll tilfinning hafði yfirgefið báða fætur og sjónin var farin að daprast. Annars ekki undan neinu að kvarta. Nema þá kannski fylleríinu á liðinu. Hvað er það að fara á tónleika á mánudegi og liggja svo slefandi og prumpandi úti við vegg? Eða hanga bara á "barnum" og tala rosalega hátt á meðan Roger Waters er á sviðinu? Veeeei.

Annars allt fínt bara, fullt af spennandi hlutum að gerast á X-FM eins og venjulega og dimmur verður sá dagur þegar tónlist hættir að koma manni á óvart. Helstu meðmælin þessa dagana eru...Eberg, Einar Tönsberg, sem var að gefa út Vaff Vaff, og Bela, sem er norðanpilturinn Baldvin Ringsted. Platan hans heitir Hole and Corner. Alveg ljómandi skemmtilegt.

Loksins glitti í sól og þá er ekki að sökum að spyrja. Við vbv brugðum okkur út í góða veðrið og slógum nokkra golfbolta. Ef eigandi brúna Saabsins sem stóð fyrir utan Skjá 1 á miðvikudaginn les þetta...þá var það vbv sem sló kúluna í húddið á honum.















Getur einhver, sem hefur hæfilega mikil völd og áhrif, bannað sýningar sjónvarpsauglýsingarinnar frá OR? Hún kallar fram líkamleg viðbrögð.