Á skólabekkinn!
Var að fá inngöngu í Endurmenntun HÍ. Rekstrar- og viðskiptafræði, nám með starfi. Eitthvað verður maður að gera við þessar takmarkalitlu gáfur! Þetta var nú eiginlega löngu tímabært. Afrek mín á háskólastigi dreifa sér nokkuð jafnt á fjóra fagra haustdaga 1989. Eftir að hafa horfið frá upphaflegri hugmynd The Three Amigos um að nema laganna fræði skráði ég mig í félags- og fjölmiðlafræði. Offi og Berti fóru í lögfræðina. Í dag er Offi jarðfræðingur og Berti er sálfræðingur. Ekki orð um það meir. Ég fékk inni á Garði og hvaðeina. Kom m.a.s. snemma, svona eins og sveitamanna er siður, og henglaðist á gömlu Stjörnunni fram að fyrsta skóladegi. Nágrannir mínir fóru að tínast inn hver á fætur öðrum og þetta var ansi skrautlegur hópur. Tvær lessur á lopapeysum sem skildu ekkert í því að ég vildi ekki reykja hass með þeim, sænskur læknanemi sem fann Íslandi og Íslendingum gjörsamlega allt til foráttu og Indverji sem byrjaði á því að rífa allt út úr herberginu sínu, mála og endurskipuleggja allt frá a til ö. Ég flutti út á fimmta skóladegi, strax eftir fyrsta fjölmiðlafræðitímann. Mér fannst þetta glatað. Fékk reyndar ansi freistandi tilboð um fulla vinnu á Stjörnunni á sama tíma og það hafði sín áhrif. Flutti af Garði og fór að leigja með Gulla Þór í Barmahlíðinni.
Ég held að þetta verði bara ágætt.
Velti því aðeins fyrir mér um helgina hvort ég væri algjörlega búinn að missa það. Þetta er það sem ég var að sýsla...svona mestmegnis...á föstudags- og laugardagskvöld.

Þetta er reyndar þrælskemmtilegt...www.flyordie.com...en samt er svolítið glatað að eyða þessum sérvöldu kvöldum í þetta. Það læddist að mér sá grunur að sjónvarpsstjórar þessa lands væru í keppni um helgina..."hver getur boðið upp á ömurlegustu dagskrána...og komist upp með það". Þess vegna kallaði snókerinn alltaf á mig aftur og aftur.
Það læðast alltaf að manni annað slagið áminningar um að árin færast yfir. Sú nýjasta...barnið mitt er að búa sig undir það að fara í framhaldsskóla. Ég er samt ekkert svo gamall...ég eignaðist hana þegar ég var nýorðinn 15!

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home